Já, þá er hann mættur á svæðið og fyrstu æfingar eftir þessu hressilega prógrammi fóru fram í gær og gengu mjög vel. Ketillinn, Blönduóströllið og Málarinn fóru eftir þessu í gær og ljóst að mikið starf er framundan fyrir Íslandsmót Metal í apríl en það gengur.
Fyrst er farið í 4 vika undirbúningsprógram og síðan í 5 vikna keppnisprógram - verður ekkert mál eða þannig 
Allir búnir að vera duglegir á nýja árinu og vonandi heldur það bara áfram.
Teygjutwister kom við í kaffi með spúsu sina og voru þau nokkuð hress miðað við að þau voru á suðurleið og voru að fara að fylla kerru af búslóð 
Árið verður bara gott, eða eins og sagt var í Peter Pan myndinni sem ég sá - muna pokann með jákvæðu hugsununum - það viðhorf getur skipt miklu í lífinu fyrir mann sjálfan og þá sem maður umgengst.
Ketillinn óskar öllum farsældar á nýja árinu og að allir verði "HRIKALEGIR" eða þannig.